Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

Vel heppnað jólahlaðborð

Þann 5. desember var haldið  jólahlaðborð í hádeginu þar sem menn og konur gæddu sér á síld, laxi, pörusteik og fleira góðgæti. Þessu var svo skolað niður með þessari fínu jólablöndu af malti og appelsíni. Ekki var annað að sjá en að flestir væru bara hæstánægðir með herlegheitin enda bæði matur og félagskapur af bestu gerð. Stjónin vill þakka fyrir góða þátttöku með von um gott samstarf á komandi ári.

Jólakveðja, stjórnin


Nánar um fyrirhugaða dagskrá Brimils

Glöggir félagsmenn hafa bent okkur á að í síðustu færslu gleymdist að tilgreina hvort um væri að ræða starfsmannaskemmtun, skemmtun með maka eða fjölskylduskemmtun. Hér fyrir neðan eru þær upplýsingar Smile

Skautaferð er fjölskylduskemmtun

Þorrablót er makaskemmtun

Fótboltamót starfsmannaskemmtun

Óvissuferð er ekki búið að ákveða hvort það sé maka eða starfmannaskemmtun

Keilumót er starfsmannaskemmtun

Golfmót er fjölskylduskemmtun

Sumarferð er fjölskylduskemmtun

Árshátið er makaskemmtun  

Brimill áskilur sér rétt að breyta dagskrá ef þörf er á.

Kær kveðja, stjórnin


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband