Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2006

Fjörugt starfsár í starfsmannafélaginu framundan

Já... við unnum aldeilis þessar kosningar og núna byrjar fjörið. Við stelpurnar í stjórn Brimils erum byrjaðar að funda og gengur mjög vel. Það hefur verið ákveðið hvernig við munum "sitja" og mun það vera: Formaður - Lovísa, Ritari - Rósa, Gjaldkeri - Sigurlaug, Bloggstjóri - Lilja, Meðstjórnandi -  Elín.

Eins og allir Brimborgarar vita voru lagðar fram, á síðasta aðalfundi, 3 tillögur til lagabreytinga og hafa þær verið undir smásjá undanfarnar vikur.

Á næstu vikum munum við setja upp ársdagskránna. Og það má búast við að hún verði þétt, því við erum með margt í sigtinu fyrir komandi ár og vonum að allir séu komnir í gírinn. Það  eru 159 Brimborgarar skráðir í starfsmannafélagið, sem segir okkur að hver og einn viðburður ætti að vera fjölmennari en nokkru sinni fyrr.

Við hlökkum til að takast á við verkefni næsta árs og vonum að samstarfið verði gott.

Lilja Helgadóttir, bloggstjóri Brimils

Hafðu samband: lilja@brimborg.is


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband