Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009

Frábær óvissuferð

Brimill skipulagði frábæra óvissuferð þann 18. apríl. Henni verður best lýst með bréfi frá einum hressum þátttakanda:

 

"Sæl öll

Mig langar að þakka fyrir frábæra óvissuferð hjá stjórn Brimils.

Ótrúlegt hugmyndarflug sem þessi stjórn hefur!   Að fara með starfsmennina  á fjórhjól í sundskýlu  og enda svo á kæjak allsberir gerði  þetta að meiriháttari ferð.  Ég vona að enginn missi af næstu óvissuferð! 

Stelpur þið misstuð af  miklu!  25 strákar hver öðrum sætari  (ég samt sætastur)  og allir með ótrúlega sönghæfileika þegar líða fór á kvöldið og  svo sló brandarakeppnin hans Hjartar í gegn í rútunni á leiðinni heim :) 

Nóg var af veigum og kynning í bjórverksmiðju átti þar stóran hlut og gott dæmi um velhugsaðan atburð, að vísu var einn galli á gjöf Njarðar....óteljandi pissustopp óvissufaranna! Svo mörg voru þau að erlendir ferðamenn voru farnir að taka myndir!

Næst var ferðinni heitið í sund í Minni Borgum og þar fengu óvissufarar ljúffengar heimasmurðar samlokur sem slógu algjörlega í gegn ;)

Við fengum afnot af íþróttasal í Minni Borgum til þess að snæða samlokurnar en verst var að sumir (2 aðilar ekki nefndir á nafn) misskildu þetta aðeins því þeir byrjuðu að afklæða sig og okkur hinum leist ekki á blikuna! Þeir héldu sem sagt að við mundum ekki fá að fara í sundklefann því við vorum svo margir saman :) Rennibrautin og stelpurnar 2 sem voru í sundinu höfðu mikið aðdráttarafl á okkur strákana:)

Eftir sundið var svo aftur haldið upp í rútuna og allir með hugmyndir  hvað mundi gerast næst en enginn hafði rétt fyrir sér ! 

Veiðisafnið var næsti viðkomustaður og enn og aftur mættum við á frábærum tíma því nýinnkomnar voru 25 yngismmeyjar frá Skagafirði að skoða safnið og lifnaði þá yfir okkur því þetta var sannkallaður veiðistaður!!

Eftir velheppnaða veiði var haldið í DRAUGASETRIР á Stokkseyri,  sumir voru hræddari en aðrir, nefnum engin nöfn, en ELLI..hvað var málið með þig :) Nokkrir óvissufarar voru ansi snöggir í gegnum draugahúsið... Eftir það voru allir vissir um að ferðinni væri heitið  í Rauða Húsið í humar en  aftur höfðu óvissufararnir rangt fyrir sér því  þá voru okkur boðið í mat innan um alla draugana! 

Þegar líða tók á kvöldið tók Elli gítarsnillingur upp gítarinn og fórum við 25 tenórarnir að syngja við mikinn fögnuð drauganna sem dönsuðu og klöppuðu vel fyrir okkur. 

Aftur þakka ég öllum þessum 25 heiðursmönnum fyrir skemmtilegan dag :)  

Það eru komnar myndir inn á sameignina!  

Kv. Guðfinnur"


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband