Mánudagur, 8. janúar 2007
Brimborg styður íslenska menningu
Brimborg hefur ákveðið að styðja við bakið á Vesturporti sem stendur að nýrri íslenskri kvikmynd, Foreldrar, í leikstjórn Ragnars Bragasonar en myndin verður frumsýnd á næstunni. Þetta er kvikmynd í fullri lengd og eru aðalleikarar Nanna Kristín Magnúsdóttir, Víkingur Kristjánsson og Ingvar E. Sigurðsson.
Myndin er einskonar systurmynd annarrar íslenskrar myndar sem heitir Börn og var frumsýnd í september á síðasta ári en myndirnar voru unnar samhliða. Myndin Börn fékk frábæra dóma og hefur verið valin fyrir Íslands hönd til forvals Óskarsverðlaunanna í Hollywood. Börn hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda og er nú þegar búin að vinna til verðlauna á kvikmyndahátíðum hér heima og erlendis t.d. á Ítalíu og er eftirsótt til sýninga á kvikmyndahátíðum um allan heim. Myndin var t.d. tilnefnd til 8 Edduverðlauna og fékk verðlaunin fyrir handrit ársins en þess má geta að Citroën frá Brimborg studdi dyggilega við bakið á Eddunni fyrr í vetur.
Það verður spennandi að sjá þessa mynd en Brimborg, í samvinnu við Vesturport, býður starfsmönnum og mökum til forsýningar á Foreldrum föstudaginn 12. janúar.
Egill Jóhannsson, framkvæmdastjóri
Hafðu samband: egillj@brimborg.is
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.