Etanol framleiðsla á Íslandi

Egill Jóhannsson, framkvæmdastjóri Brimborgar skrifar; 

Líflegar umræður hafa verið á Brimborgar blogginu eftir skrifin um möguleikann á að bjóða upp á bíla sem ganga fyrir etanoli. Ég hef verið spurður hvaðan etanolið eigi að koma. Því er svarað lauslega í upphaflegu færslunni aftur núna og með ítarlegri hætti.

En áður en ég kem að því þá er gaman er að geta þess að nokkrum dögum eftir færslu Brimborgar um etanol er RÚV með frétt um framleiðslu á díselolíu úr korni (bio-diesel eða líf-dísilolíu) hér á landi. Tilviljun? Held ekki og ljóst að þetta hefur opnað umræðu um fleiri kosti. Það er gott. En hér má lesa á Wikipediu um bio-diesel.

En snúum okkur aftur að etanoli. Þetta er í raun en sígilda spurning um eggið og hænuna. Hvort kemur á undan bílar sem ganga fyrir etanoli eða etanolið sem fer á bílana. Tillaga Brimborgar gengur einfaldlega út á það að skilgreina þessa gerð bíla í sama flokk og aðra tvíorkubíla, skapa þannig markað fyrir þessa bíla og um leið skapa væntingar um markað fyrir etanol fyrir þá sem hugsanlega vilja framleiða etanol eða flytja það inn.

Þá spyrja margir hvort hægt sé að framleiða etanol hér á landi. Aukin sala á etanol bílum t.d. í USA skapar forsendur fyrir frumkvöðla að finna leiðir til að auka framleiðsluna eða hefja hana frá grunni. Kornbændur margir í Bandaríkjunum hafa snúið sér í meira mæli að þessari framleiðslu.

Mér var bent á í athugasemd á blogginu mínu að "vandamálið við etanol framleiðslu hérlendis gæti verið hráefnisöflun því erlendis er m.a. notaður hálmur sem er aukaafurð í kornrækt og gerir framleiðsluna hagkvæmari".

Í þessu samhengi vil ég minna á að meira að segja Íslendingar hófu fyrir mörgum árum kornrækt og er t.d. blómleg ræktun á nokkrum glæsilegum búum hér á landi. Ekki höfðu margir trú á þessu í upphafi. Og kannski má segja að jákvæð áhrif loftlagsbreytinga gæti verið auknir möguleikar í kornrækt hér á landi. Einnig er hægt að flytja það inn frá löndum sem framleiða það. En það sem er mikilvægast í þessu er að stjórnvöld eiga að skapa almennar forsendur - hitt kemur síðan að sjálfu sér þ.e. markaðurinn því frumkvöðlarnir finna leiðirnar þegar forsendurnar hafa verið skilgreindar.

Wikipedia fjallar um etanol og framleiðslu á því: "Current interest in ethanol lies in production derived from crops (bio-ethanol)".


Erindi til Alþingis um bifreiðar knúnar Etanoli

Egill Jóhannsson, framkvæmdastjóri Brimborgar skrifar;

Í lok nóvember á síðasta ári sendi undirritaður til Alþingis, nánar tiltekið til Efnahags- og viðskiptanefndar, fyrir hönd Brimborgar, erindi og umsögn um frumvarp til breytinga á lögum um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti og fl. Í frumvarpinu er fjallað um ökutæki sem geta gengið fyrir tveimur orkugjöfum, þ.e. tvíorkubílar eða svokallaðir Hybrid vehicles. Þessir bílar hafa fengið niðurfellingu á hluta af vörugjöldum og í breytingunni fólst eingöngu að framlengja þá heimild.

Umsögn Brimborgar fjallar um þann möguleika að bæta inn í lögin bílum sem ganga fyrir Etanoli (E85) en það er orkukgjafi sem er 85% Etanol og 15% bensín. Alls virðast hafa borist 14 umsagnir við frumvarpið en í nefndarálitinu sem nefndin skilar frá sér eftir að allar umsagnir eru komnar í hús er eingöngu tæpt á því efni sem Brimborg sendi inn þ.e. um Etanol orkugjafa og sama má segja um ræðu formanns nefndarinnar, Péturs H. Blöndal. Nokkrir nefndarmenn skrifuðu undir nefndarálitið með fyrirvara en ekki kemur fram hvað felst í fyrirvaranum. Brimborg gerir athugasemd við álitið þar sem fjallað er um Etanol orkugjafann því sá texti gengur ekki upp miðað við annað efni laganna en textinn hljómar svona:

"Við umfjöllun málsins kom til umræðu hvort ökutæki sem nýta etanól (E85) sem orkugjafa ættu einnig að falla undir frumvarpið og þá lækkun vörugjalds sem í því felst. Nefndin telur þetta þarfnast nánari skoðunar við enda samanstendur etanól-eldsneyti bæði af etanóli og bensíni."

Það sem gengur ekki upp í þessu er sú staðreynd að lögin taka á bílum sem eru svokallaðir tvíorkubílar þ.e. eðli málsins samkvæmt geta gengið fyrir tveimur orkugjöfum t.d. á metangasi/bensíni, rafmagni/bensíni, o.s.frv. Því er alveg eins hægt að aka þeim bílum eingöngu á bensíni ef menn vilja og á sama hátt er hægt að aka Etanol bílum á bensíni ef sá gállinn er á mönnum.

Þingmenn eru því hvattir til að breyta lögunum aftur og bæta Etanol bílum í lögin og hvetja þannig aðila til að hefja framleiðslu á þeim orkugjafa eða flytja hann inn og skapa þannig aðstæður til innflutnings á svona bílum. Það mun skapa fleiri valkosti á þessum markaði, auka samkeppni og draga úr mengun og brennslu á jarðeldsneyti og gæti jafnvel bætt hag bænda sem gætu hafið Etanol framleiðslu eins og segir á Wikipediu: "Current interest in ethanol lies in production derived from crops (bio-ethanol)"

Frumvarpið var samþykkt með 48 atkvæðum en 15 voru fjarstaddir. Umsögn Brimborgar í heild sinni kemur hér fyrir neðan.

Reykjavík, 28. nóvember 2006

Alþingi

Nefndasvið

Austurstræti 8-10

150 Reykjavík

Efni: Umsögn um Þskj. 390 - 359 mál. Frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., með síðari breytingum.

Berist til nefndasviðs:

Undirritaður Egill Jóhannsson, framkvæmdastjóri Brimborgar, fyrir hönd Brimborgar ehf., sendi hér með inn umsögn um þskj. 390 - 359 mál.

Undirritaður mælir með því að bifreiðar sem nýta etanol að verulegu leiti fái sambærilega lækkun gjalda og bifreiðar með metangasi eða rafmagni. Rökin eru þau að bifreiðar knúnar etanoli uppfylla markmið umræddrar greinar ofangreindra laga jafnvel, ef ekki betur, en þær eldsneytisgerðir sem nú þegar njóta lægri gjalda.

Mikil aukning hefur orðið á þessu ári í sölu og notkun bifreiða knúna þessu eldsneyti t.d. í Svíþjóð, Bandaríkjunum og Bretlandi. Ástæðan er sú að þetta eldsneyti er hægt að nota með tiltölulega litlum breytingum á vélum og uppfyllir því jafn vel, ef ekki betur, markmiðin í núverandi frumvarpi um að tvíorkubílar séu nauðsynlegt skref til að brúa bil þangað til dreifikerfi orkugjafa hefur verið aðlagað að nýjum orkugjöfum. Þess má geta að yfirvöld og sveitarfélög í Svíþjóð veita ýmsar ívilnanir fyrir þá sem aka um á bílum knúnum etanoli.

Etanolið gengur undir nafninu E85 vegna þess að 85% af eldsneytinu er etanol og 15% bensín og því er útblástur gróðurhúsalofttegunda hverfandi. Sala hefur nú þegar hafist í nokkrum löndum í Evrópu en Svíþjóð er langfremst á þessu sviði. Úrdráttur úr frétt þann 10. febrúar 2006 frá Ford Motor Company lýsir stöðunni nokkuð vel.

Ég birti textann á ensku og slóðina á alla fréttina hér fyrir neðan.

"Latest figures have revealed that more than 17,000 Ford Focus and Focus C-MAX Flexi-Fuel models have been sold in Sweden, which, in 2001, became the first European country to introduce FFVs (Flexi-Fuel vehicles).

This accounts for 80 per cent of all Focus sales in Sweden. And demonstrating a real shift in thinking, nearly 40 per cent of all Ford sales in Sweden now are FFVs.
Following this success in Sweden, Ford Focus Flexi-Fuel and Focus C-MAX Flexi-Fuel models are now on sale in Germany, the UK and the Netherlands. The Focus Flexi-Fuel is also available in Austria and Ireland, and ready to be sold in France. Other countries are expected to follow.

FFVs are part of Ford's broad portfolio of environmentally advanced vehicle technologies and its commitment to develop and offer them as an affordable alternative for our customers."

FFV=Flexi Fuel Vehicles

Ekki eru til staðar miklar tæknilegar hindranir við nýtingu þessa orkugjafa nema auðvitað framleiðslan á orkugjafanum sjálfum en lækkun gjalda á bílum af þessu tagi gæti gefið hugmyndum um framleiðslu á etanol hér á landi byr undir vængi.

Einnig er notkun bíla af þessu tagi í samræmi við rammasamning Sameinuðu Þjóðanna um loftslagsbreytingar og gæti stutt stefnu stjórnvalda í að auka hlut innlendra orkugjafa því líklegt verður að telja að hægt verði að framleiða etanol hér á landi.

Meðfylgjandi eru slóðir á vefsíður sem fjalla um bíla sem ganga fyrir etanoli.

Volvo car corporation um Volvo bíla knúnum vélum með etanoli:http://www.volvocars.com/corporation/environment/Alternativefuels/VolvoFlexiFuel.htm

Frétt frá Ford í Bretlandi um útblástur Ford bíla með vélum knúnum etanoli.

http://media.ford.com/article_display.cfm?article_id=23826

Frétt um þátttöku Ford í verkefnum í Evrópu varðandi Etanol.

http://media.ford.com/article_display.cfm?article_id=22619

 

Virðingarfyllst

Brimborg ehf.

Egill Jóhannsson, framkvæmdastjóri


Einokun í ralli

Svíþjóðarrallið var haldið nú um helgina en það er að margra mati ein allra skemmtilegasta rallkeppni hvers árs. Keyrt er um snævi þakta skóga Värmlands, norðan stöðuvatnsins risastóra Vänern, og eru aðstæður bæði fallegar og erfiðar.

Ford og Citroën bera um þessar mundir höfuð og herðar yfir önnur bílmerki þegar kemur að rallakstri sem sést best á því að á síðasta ári vann Frakkinn Sebastien Loeb, sem ekur fyrir Citroën, titil ökuþóra en Ford vann keppni bílmerkja. Það þarf vart að minna á að þessi bílmerki eiga bæði öruggan stað til að vera á í Brimborg og frammistaða þeirra við hinar krefjandi aðstæður sem rallökumenn þurfa oft að kljást við sýnir og sannar að þau eiga fullt erindi við íslenskar aðstæður.

Sænska rallið um helgina varð æsispennandi en það var Marcus Grönholm hinn finnski sem sigraði og Loeb kom fast á hæla hans. Þessir tveir einokuðu nánast keppnir síðasta árs og fátt sem bendir til þess að önnur lið eigi innan sinna vébanda ökumenn sem geta skákað þeim.

Þórður Jónsson, framkvæmdastjóri sölusviðs Brimborgar

Hafðu samband: thordur@brimborg.is


Brimborg styður íslenska menningu

Brimborg hefur ákveðið að styðja við bakið á Vesturporti sem stendur að nýrri íslenskri kvikmynd, Foreldrar, í leikstjórn Ragnars Bragasonar en myndin verður frumsýnd á næstunni. Þetta er kvikmynd í fullri lengd og eru aðalleikarar Nanna Kristín Magnúsdóttir, Víkingur Kristjánsson og Ingvar E. Sigurðsson.

Myndin er einskonar systurmynd annarrar íslenskrar myndar sem heitir Börn og var frumsýnd í september á síðasta ári en myndirnar voru unnar samhliða. Myndin Börn fékk frábæra dóma og hefur verið valin fyrir Íslands hönd til forvals Óskarsverðlaunanna í Hollywood. Börn hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda og er nú þegar búin að vinna til verðlauna á kvikmyndahátíðum hér heima og erlendis t.d. á Ítalíu og er eftirsótt til sýninga á kvikmyndahátíðum um allan heim. Myndin var t.d. tilnefnd til 8 Edduverðlauna og fékk verðlaunin fyrir handrit ársins en þess má geta að Citroën frá Brimborg studdi dyggilega við bakið á Eddunni fyrr í vetur.

Það verður spennandi að sjá þessa mynd en Brimborg, í samvinnu við Vesturport, býður starfsmönnum og mökum til forsýningar á Foreldrum föstudaginn 12. janúar.

Egill Jóhannsson, framkvæmdastjóri

Hafðu samband: egillj@brimborg.is


Árið 2006 stórt bílaár, samdrætti spáð 2007

Árið 2006 næst stærsta bílaárið 

Árið 2006 var stórt ár í bílasölu á Íslandi en samtals voru seldir 19.851 nýr bíll á árinu Þetta er þó ekki stærsta bílasöluárið því árið 2005 trónir á toppnum með 20.578 nýja bíla og því er samdráttur á milli ára -3,5%. Rétt er að nefna að þegar talað er um sölu nýrra bíla í þessu samhengi tek ég með alla fólksbíla, jeppa, sendibíla, rútur, litla og stóra pallbíla og léttari vörubíla.

Árið 1987 enn í þriðja sæti 

Árið 2006 skráist í sögubækur sem annað stærsta árið í sölu nýrra bíla því það slær út metárinu 1987 en þá voru seldir 18.081 nýr bíll. Það ár var í raun gríðarlega merkilegt ár á margan hátt og má í raun segja að salan þá hafi í raun verið hlutfallslega mun meiri en árin 2005 og 2006 ef tekið er tillit til fólksfjölda og aðstæðum í efnahagslífinu. Það voru nokkar ástæður fyrir þessari miklu sölu árið 1987 og reyndar var árið 1986 líka stórt eða 13.352 bílar. Ástæður þessarar miklu sölu voru helstar:

  • Mikill uppgangur í efnahagslífinu árið 1986 og 1987
  • Veruleg lækkun vörugjalda á bílum sem hluti af þjóðarsátt um kjarasamninga 1986
  • Vaxtaákvarðanir gefnar frjálsar 1986 sem leiddi m.a. til stofnunar fyrirtækja eins og Glitnis og Lýsingar sem hófu lán til bílakaupa
  • Árið 1987 var skattlaust ár þegar breytt var úr eftirágreiddum sköttum yfir í staðgreiðslu skatta. Þetta leiddi til gífurlegs hvata til vinnu sem aflaði fólki gífurlegra tekna

Árið 1999 er síðan fjórða stærsta bílasöluárið með 16.904 bíla selda og árið 2000 er það fimmta stærsta með 15.319 bíla. Til samanburðar þá má nefna að árið 2001 var salan aðeins 8.280 bílar og enn minni árið 2002 eða 7.801 bíll.

Samdráttur á markaðnum árið 2006 er -3,5% 

Eins og áður segir minnkaði salan á árinu 2006 um -3,5%, þ.e. úr 20.578 bílum í 19.851 bíl. Það er athyglisvert að greina þá tölu nánar því hún segir ekki alla söguna því hún er meðaltal allra flokka. Við höfum greint markaðinn í nokkra flokka og eru þeir eftirfarandi.

  • Fólksbílar og jeppar: Fjöldi 2005: 15.955 Fjöldi 2006: 14.604 Samdráttur: -8,5%
  • Fólksbílar og jeppar til bílaleiga: Fjöldi 2005: 2.105 Fjöldi 2006: 2.523 Aukning: +19,9%
  • Sendibílar og minni pallbílar: Fjöldi 2005: 2.079 Fjöldi 2006: 2.483 Aukning: +19,4%
  • Rútur: Fjöldi 2005: 106 Fjöldi 2006: 56 Samdráttur: -47,2%
  • Stórir pallbílar og léttir vörubílar: Fjöldi 2005: 333 Fiöldi 2006: 185 Samdráttur: -44,4%

Einnig er áhugavert að skoða breytinguna á sölunni eftir því sem leið á árið 2006. Fyrstu þrjá mánuði ársins 2006 seldust 6051 nýr bíll en á sama tíma árið 2005 seldust 4097 bílar. Jókst salan frá sama tíma árið 2005 um hvorki meira né minna en +47,7%. En það þýðir auðvitað að seinnipartur ársins frá apríl til desember hefur verið samdráttartímabil. Skoðum það nánar.

Frá apríl til desember 2005 voru seldir 16.481 bíll en á sama tíma árið 2006 seldust 13.800 bílar eða samdráttur um -16,3%. Ef skoðaðir eru þrír síðustu mánuðir ársins þá dróst markaðurinn saman um -22,5% í október, um -25% í nóvember og um -39,1% í desember.

Samdráttur í fólksbílum og jeppum -43% í desember

Eins og áður segir eru allir flokkar bíla inn í þessum tölum. En það er athyglisvert að greina markaðinn með því að taka til hliðar svokallaða atvinnubíla eins og sendibíla, pallbíla, rútur og létta vörubíla. Þá verða eftir eftir fólksbílar og jeppar en inn í þeirri tölu eru bílar seldir til bílaleiga. Ef bílaleigubílarnir eru líka teknir frá þá verða eftir fólksbílar og jeppar sem seldir eru til einstaklinga og hefðbundinna fyrirtækja. Ástæðan fyrir því að við greinum bílaleigur sérstaklega er sú að salan þar er mjög árstíðabundin þ.e. maí til júlí að mestu leiti og einnig eru söluskilmálar ólíkir því sem gengur og gerist þ.e. flotinn er nánast allur keyptur til baka í einu lagi eftir ákveðinn tíma.

Eins og áður kemur fram þá seldust allt árið 2005 15.955 fólksbílar og jeppar en árið 2006 voru þeir 14.604 og er það samdráttur upp á -8,5%. Fyrstu þrjá mánuði ársins 2006 voru seldir 5.218 bílar skv. þessari skilgreiningu á móti 3.472 bílum fyrstu þrjá mánuði ársins 2005. Það er aukning um +50,2%. Þegar aftur á móti er litið á seinni part ársins 2006, frá apríl til desember, þá seljast í þessum flokki 9.386 bílar en á sama tíma árið 2005 12.483 bílar. Það er samdráttur upp á -24,8%. Ef skoðaðir eru síðustu þrír mánuðir ársins er samdrátturinn í þessum flokki -31,5% og í desember einum er samdrátturinn -43% frá því í desember 2005.

26% samdrætti spáð árið 2007

Brimborg spáir -26% samdrætti árið 2007 á heildarmarkaði nýrra bíla (allar tegundir bíla) m.v. árið 2006 og reiknar því með að markaðurinn verði 14.697 bílar. Heldur meiri samdrætti er spáð á fólksbíla- og jeppamarkaði til einstaklinga og hefðbundinna fyrirtækja því þar spáir Brimborg -30% samdrætti og að markaðurinn verði 10.150 bílar. Þar sem fyrstu þrír mánuðir ársins 2006 voru gríðarlega stórir má reikna með miklum samdrætti í upphafi nýja ársins og gerum við ráð fyrir að samdrátturinn verði um -50% fyrstu þrjá mánuðina. Aftur á móti reiknar fyrirtækið með um +4% aukningu á markaði til bílaleiga en aukningin hjá bílaleigum árið 2006 var um +20%.

Árið 2006 var metár hjá Brimborg en fyrirtækið afhenti tæplega 2.500 nýja bíla á árinu og yfir 2.100 notaða bíla eða samtals 4.600 bíla. Meira en 150 nýjir vörubílar, vinnuvélar og bátavélar voru afhentar og er það einnig met.

Að lokum viljum við nýta tækiðfærið og þakka fyrir viðskiptin á liðnu ári með ósk um gleðilegt nýtt ár til viðskiptavina, samstarfsmanna og landsmanna allra.

Egill Jóhannsson, framkvæmdastjóri

Hafðu samband: egillj@brimborg.is


Nýjar reglur um stóra pallbíla

Á Ford blogginu er ný færsla sem fjallar um nýjar reglur um skráningar stórra pallbíla sem taka gildi um áramót. Þær fela í sér þá breytingu að ekki verður hægt að aka stórum pallbílum yfir 3,5 tonn í heildarþyngd hraðar en 90 km. / klst. Kynntu þér málið.

Þórður Jónsson, framkvæmdastjóri sölusviðs

Hafðu samband: thordur@brimborg.is


Mustang af ítölskum ættum og Volvo fær öryggisverðlaun

Ný færsla er komin á Ford bloggið um magnaðann Ford Mustang af ítölskum ættum og einnig er ný færsla á Volvo blogginu um öryggisverðlaun sem Volvo XC90 var að fá í Bandarikjunum.

Þórður Jónsson, framkvæmdastjóri sölusviðs

Hafðu samband: thordur@brimborg.is


Vaskir sveinar og Explorer vetnisbíll

Ný færsla er á Volvo vinnuvélabloggi Brimborgar eins og lesa má hér og einnig á Ford blogginu eins og lesa má hér.

Nýjar færslur á Volvo og Ford bloggunum

Nýjar færslur eru komnar á Ford og Volvo bloggið.

Á Volvo blogginu er færsla um ný öryggis- og tækniverðlaun sem Volvo fékk frá tímaritinu Autocar og á Ford blogginu er fjallað um verðlaun frá sama blaði sem aðalhönnuður Ford í Evrópu fékk fyrir framúrskarandi árangur í sínu starfi.


Bíll ársins í Evrópu 2007 - Brimborg með þrjá bíla í úrslitum

Það hefur þegar komið fram í fréttum hjá Brimborg, bæði hér og nánari umfjöllun hér og einnig á Ford blogginu að Ford S-Max sigraði í vali á bíl ársins í Evrópu árið 2007. Verðlaun þessi þykja þau eftirsóknarverðustu í bílaheiminum og er þetta í fimmta sinn sem Ford sigrar.

En við getum verið stolt og ánægð hjá Brimborg. Í upphafi var 41 bíll tilnefndur og síðan komust 8 bílar í úrslit. Af þeim bílum er Brimborg með þrjá bíla. Í fyrsta sæti varð, eins og áður sagði, Ford S-Max og síðan kom Citroën C4 Picasso mjög sterkur inn í þriðja sæti og það var síðan Volco C30 sem náði 7 sætinu.

Alveg einstakur árangur og nú bíðum við Brimborgarar spenntir eftir að þessir bílar komi í hús. Volvo C30 er kominn til landsins en Ford S-Max er væntanlegur í febrúar og Citroën C4 Picasso kemur líklega til okkar næsta vor.

Spennandi ár framundan.

Þórður Jónsson, framkvæmdastjóri sölusviðs

Hafðu samband: thordur@brimborg.is


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband